Listin & börnin   Prenta  Senda 

Franska fatahönnunarlínan Poudre de Perlimpinpin (sem á íslensku þýðir galdraryk álfkonunnar) býður upp á litríkan og líflegan fatnað unninn úr gæðaefnum. Listrænt yfirbragð fatnaðarins ber með sér skapandi hugsun og hugmyndaauðgi. Fötin eiga uppruna sinn úr þekktum barnaævintýrum eða myndlist. Ein línan er unnin upp úr verkum hollenska myndlistamannsins Mondrian og verkum hans af einföldum kassalaga mynstrum og skærum litum.

Listakonan Lína Rut Wilberg hefur nú gengið til liðs við okkur og munum við selja fallega skúlptúra, lítil málverk og gjafakortin hennar. Þetta er skemmtilegt tækifæri til að kynna íslenska list og listamenn fyrir börnunum okkar.

 


"Rétt í byrjun" eru hlutir sem 12 börn á aldrinum 7-11 ára hafa búið til á skapandi námskeiði í Kramhúsinu vikuna 21.-25.júní. Í byrjun fá þau hluti sem þau þekkja og eru kunnuglegir.
Þau hafa breytt og betrumbætt hlutina þannig að þeir hafa öðlast nýtt hlutverk og fengið nýja merkingu. Stökkbreyttu hlutirnir hafa allir einhvers konar virkni og notagildi. Þá er hægt að skoða í útstillingarglugga verslunarinnar föstudaginn 25.júní. Leiðbeinandi barnanna er Ilmur Stefánsdóttir myndlistarkona.

 

Smelltu Smelltu Smelltu

Um verslunina Listin og börnin Mannúðarsjónarmið að leiðarljósi Fyrir ykkur úti á landi
| Lítil í upphafi | We start out small  | Skólavörðustígur 5 | 101 Reykjavík | Tel: (+354) 552 3636 | litil@litiliupphafi.is |  Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun