Mannúðarsjónarmið að leiðarljósi   Prenta  Senda 

YAKKUM Tréleikföngin koma frá endurhæfingarstöð í Yogyakarta, Indónesíu. Starfsmenn stöðvarinnar eru allir fatlaðir eftir slys eða hafa slasast í kjölfar jarðskjálftans sem reið yfir Yogyakarta og nágrenni í maí 2006.

Sérstaklega beinir stöðin sjónum sínum að þeim börnum og ungu fólki sem kemur frá fátækasta hópi samfélagsins og á ekki efni á almennri heilbrigðisþjónustu eða endurhæfingu. Um er að ræða bæði líkamlega þjálfun, sálrænan stuðning, menntun og starfsþjálfun. Markmiðið er að hjálpa ungu fólki sem annars væri óstarfshæft til koma undir sig fótunum og finna hlutverk sitt í lífinu á ný.

Allir starfsmenn stöðvarinnar eru fatlaðir og flestir vinna heiman frá sér. Þar eru þeim útveguð öll tæki og tól sem nauðsynleg eru til framleiðslunnar. Með þessari aðferðafræði er hægt að ná til margra þeirra fötluðu einstaklinga sem annars ættu ekki eða illa heimangengt vegna fötlunar sinnar. Þessir einstaklingar ná nú að leggja sitt til heimilishaldsins og efla þannig sjálfsvirðingu sínu.

Öll leikföngin eru framleidd úr fyrsta flokks hráefni og hafa þau flest öll innbyggðan þroskaþátt s.s. að læra að telja.

Eigandi verslunarinnar hefur sjálf heimsótt verkefnið og hreyfst af þeirri faglegu vinnu sem þar er unnin ásamt þeirri hugmyndafræði sem liggur að baki verkefninu.

Sjá nánar um verkefnið á http://www.rehabilitasi-yakkum.or.id/b3.php

 

Zutano styrkir Global Action for Children Organisation. Þau hafa það að markmiði að vekja samfélagið til vitundar um þarfir alþjóðasamfélagsins í tengslum við born með AIDS og aðra sjúkdóma eða heilsufarstengd vandamál. Einnig vinna þau að því að fjölga talsmönnum þessara málstaða. Stofnunin vinnur að fjáröflun og bættri stefnu í málum munaðarleysingja og annarra hópa barna sem að einhverju leyti teljast í áhættuhóp. Global Action for Children hefur það að markmiði að öll born skuli hafa aðganga að heilbrigðisþjónustu, menntun, fæði og stuðningsríku umhverfi svo þau geti átt innihaldsríkt og heilbrigt líf. Að auka vellíðan þeirra barna sem eru í áhættuhóp eykur vellíðan allra barna í heiminum.

Hægt er að fræðast nánar um verkefnið á www.globalactionforchildren.org

 

 

Við erum í hópi íslenskra fyrirtækja sem styðja verkefni UNICEF
um að byggja skóla í fátækustu ríkjum Vestur-Afríku.

Kalinga verkefnið í Hollandi framleiðir viðarkort sem renna til uppbyggingu skólastarfs fyrir börn sem fæðast inn í ruslahugasamfélagið á Manila á Filippseyjum. Kortin eru afar falleg og sérstök og eru seld í versluninni. Sjá nánar um verkefnið á www.kalinga.nl

Livie og Luca leggja sitt af mörkum til mannúðarmála. Í hverjum mánuði rennur hlutfall sölunnar til mannúðarmála. Livie og Luca endurvinna skópörin sín með þeim hætti að þau bjóða fólki að senda inn notuðu skópörin og eru þau síðan send til verkefnisins Art for Humanity. Art for Humanity kemur skónum til Honduras þar sem fátækar fjölskyldur njóta þeirra. Art for Humanity var stofnað til að aðstoða fátækar fjölskyldur við að nýta þá þekkingu sem þau bjuggu yfir til að stofna eigin smáfyrirtæki. Til að fræðast meira um Art for Humanity getið þið heimsótt www.artforhumanity.com . Tíu prósent af maí sölu Livie og Luca rennur beint til Art for Humanity.

 

Ninos & Ideas vinnur með UNICEF og rennur hluti hagnaðar fyrirtækisins til UNICEF í Suður-Ameríku.


Um verslunina Listin og börnin Mannúðarsjónarmið að leiðarljósi Fyrir ykkur úti á landi
| Lítil í upphafi | We start out small  | Skólavörðustígur 5 | 101 Reykjavík | Tel: (+354) 552 3636 | litil@litiliupphafi.is |  Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun