Skilmálar

Upplýsingar um fyrirtækið

Vefverslunin er rekin af:
Liu verslun ehf.
Hraunbraut 38, 200 Kópavogur
Kt: 420615-0780
Sími: 571-3781 - 6969464- 8682572
Netfang: litiliupphafi@litiliupphafi.is

Litil í upphafi (Liu verslun ehf.) áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. 

 

Greiðslumöguleikar:

  • Kreditkort eða debetkort í gegnum örugga greiðslusíðu Valitor, Liu verslun ehf fær aldrei kortaupplýsingar viðskiptavina.
  • Bankamillifærsla (greiða þarf innan sólarhrings og senda bankakvittun á litiliupphafi@litiliupphafi.is). Reikningsupplýsingar okkar eru 0318-26-4206 kt: 420615-0780.
  • Hægt er að greiða með Netgíró og Pei.

 

Afhending vöru:

  • Frí póstsending innanlands, ef verslað er fyrir a.m.k. 3.900 kr.
  • Eingöngu er boðið upp á sendingu innanlands.
  • Afhendingartími er 1-5 virkir dagar, að öllu jöfnu en sjálfsagt er að sækja vöru til okkar í Hlíðarnar samdægurs, hafið þá samband í síma eða tölvupósti til að ganga úr skugga um að við séum við.
  • Viðskiptavinur fær staðfestingarpóst sendan á tölvupóstfang eftir að vara er pöntuð.
  • Ef vara kemst inn um bréfalúgu er hún send sem óskráð bréf annars sem pakki.
  • Af öllum pöntunum dreifðum af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.
  • Lítil í upphafi (Liu verslun ehf) tekur ekki ábyrgð á að viðskiptavinir séu með rétt merkta póstkassa eða póstlúgur, í þeim tilfellum þar sem merkingum er ábótavant mun Íslandspóstur senda pöntuna til baka og lendir tilfallandi kostnaður á viðskiptavini. Einnig eru viðskiptavinir hvattir til að hafa nöfn og heimilsföng eins ítarleg og kostur er á þegar pantað er.
  • Hafi pöntun þín ekki borist innan uppgefins afhendingartíma er bent á að hafa samband við Lítil í upphafi á netfangið litiliupphafi@litiliupphafi.is

 

Skilaréttur:

  • Vöru má skila/skipta innan 14 daga gegn fullri endurgreiðslu eða skiptum í aðra vöru.
  • Framvísa þarf kvittun og skal vara vera í upprunalegum umbúðum, ónotuð og í söluhæfu ástandi.
  • Allir fylgihlutir þurfa að fylgja með vöru þegar vöru er skilað.
  • Kaupandi sendir vörur sem á að skila á eftirfarandi heimilisfang: Lítil í upphafi ehf. Drápuhlíð 37, 105 Reykjavík og greiðir sendingarkostnað.
  • Útsöluvörum fæst hvorki skilað né skipt.
  • Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

 

Gölluð vara:

  • Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin endurgreiðsla eða ný vara í staðinn.
  • Við greiðum sendingarkostnað innanlands sem um ræðir þegar um gallaða vöru er að ræða.
  • Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr 46/2000 og laga um neytendakaup.

 

 Persónuverndarskilmálar:

Við hjá Lítil í upphafi ehf. fögnum nýrri persónuverndarlöggjöf (GDPR) sem tók gildi þann 15. júlí 2018 hér á Íslandi og höfum uppfært stefnu okkar í samræmi við löggjöfina.

Persónuverndarstefna okkar er eftirfarandi:

Almennt um persónuupplýsingarnar:

Við leggjum áherslu á öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina okkar og förum með slíkar upplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga. Við söfnum eingöngu upplýsingum um viðskiptavini okkar til þess að geta veitt þá þjónustu sem beðið er um.

 

Um söfnun persónuupplýsinga:

Við söfnum og vinnum með persónuupplýsingar til að:

  • Halda utan um og vinna með pantanir og vörukaup.
  • Auðkenna viðskiptavini.
  • Geta afhent keypta vöru, tilkynnt um stöðu pöntunar og til að geta haft samband við viðskiptavini okkar vegna spurninga eða upplýsinga um afhendingu.
  • Geta staðfest heimilisfang viðskiptavinar og aðrar nauðsynlegar upplýsingar.
  • Geta aðstoðað viðskiptivini við vöruskil og/eða kvartanir.
  • Hafa umsjón með aðgangi viðskiptavina að vefmiðlum okkar.
  • Hafa yfirlit með vörukaupum.
  • Hafa yfirlit um vöru- og greiðslusögu viðskiptavina.
  • Markaðssetja vörur með tölvupóstum, áminningum um gleymdar/geymdar innkaupakörfur og samfélagsmiðlum.
  • Eiga samskipti við viðskiptavini okkar í gegnum síma, tölvupóst eða aðra rafræna miðla.
  • Geta rannsakað kvartanir.
  • Uppfylla lagalegar skyldur á borð við öryggisskuldbindingar vegna vöru. Þurfi að innkalla vöru eða upplýsa viðskiptavini um öryggi vöru gætum við þurft að láta af hendi upplýsingar eða samskipti til almennings og/eða viðskiptavina.
  • Bæta þjónustu og vöruframboð okkar og auka öryggi fyrir viðskiptavini.
  • Koma í veg fyrir misnotkun á þjónustu okkar og koma í veg fyrir glæpi gegn fyrirtækinu.
  • Koma í veg fyrir ruslpóst og allar óleyfilegar aðgerðir.
  • Einfalda notkun á þjónustu með því að geyma upplýsingar um viðskiptavini, greiðsluleiðir, sendingarmáta og þess háttar.

 

Við söfnum og vinnum með eftirfarandi upplýsingar:

  • Nafn
  • Tengiliðaupplýsingar (s.s. heimilisfang, netfang, símanúmer)
  • Greiðsluupplýsingar (s.s. upplýsingar um færslur, dagsetningu færslna)
  • Greiðslusaga
  • Pöntunarsaga, s.s. hvaða vara var keypt og hvert hún var send.
  • Notandanafn og lykilorð
  • Upplýsingar um vörukaup
  • Upplýsingar um tölvur viðskiptavina, síma eða önnur tæki sem viðskiptavinur notar og stillingar þeirra.
  • Upplýsingar um hvernig viðskiptavinur notar vefsíður og aðra rafræna miðla fyrirtækisins.
  • Gögn sem notandi býr til (t.d. smellir á vefsíðu og vefflettingar).
  • Hvernig vefsíður og vefmiðlar eru notuð (t.d. hvaða vefsíður og hlutar vefsíðna hafa verið heimsótt og hverju hefur verið leitað að).
  • Bréf, tölvupóstar, símaskilaboð eða aðrar upplýsingar veittar vegna athugasemdar/kvörtunar.
  • Upplýsingar um kaupdag, staðsetningu vörukaupa eða vörugalla/kvartanir.
  • Notandaupplýsingar frá netaðgangi, t.d. þegar viðskiptavinur á í vandræðum með að innskrá sig.
  • Nafnlausar tæknilegar upplýsingar sem snúa að þeim tækjum sem notuð eru og stillingar, s.s. tungumálastillingar, IP tölur, vafrastillingar, tímabelti, stýrikerfi, skjástillingar o.fl.
  • Nafnlausar upplýsingar um notkun viðskiptavina, t.d. á hvaða hátt þjónustur voru notaðar, hvernig innskráningu var háttað, hvar og hversu lengi ýmsar síður voru heimsóttar, viðbragðstími, villur við niðurhal, hvernig hægt er að tengjast þjónustum og hvenær farið var úr þjónustum, o.s.frv.
  • Nafnlausar upplýsingar um hvernig vefsíður okkar og aðrir rafrænir miðlar eru notuð (t.d. hvaða síður eða síðuhlutar hafa verið heimsótt og að hverju hefur verið leitað).
  • Nafnlausar landfræðilegar upplýsingar

 

Um upplýsingar til þriðja aðila

Í einhverjum tilfellum gætu persónugreinanleg gögn verið færð til samstarfsaðila okkar t.d. þegar kemur að markaðssetningu (prentun, dreifing o.fl.), flutningi, dreifingu, tækniþjónustu og greiðsluleiðum. Gögn sem eru persónugreinanleg eiga alltaf að vera meðhöndluð af þriðja aðila í samræmi við lög og tilgang okkar við gagnasöfnun.

Við gætum einnig þurft að veita stjórnvöldum t.d. lögreglu eða skattayfirvöldum aðgang að persónugreinanlegum upplýsingum. Að auki gætum við þurft að veita bönkum, korta- og greiðsluleiðafyrirtækjum og flutningsfyrirtækjum aðgang að gögnum sem hægt er að persónugreina. Í slíkum tilvikum eiga þeir aðilar sem fá hjá okkur persónugreinanleg gögn að vinna gögnin í samræmi við lög og reglur um vinnslu persónuupplýsinga.

 

Um smákökur (cookies)

Það eru tvær tegundir af smákökum. Ein geymir textaskrá í ákveðinn tíma, þar til hún rennur út. Tilgangur hennar er t.d. að segja þér hvað hefur gerst frá því þú heimsóttir síðast. Hin tegundin er svokölluð session cookie, sem hefur ekki dagsetningu. Textaskráin er vistuð tímabundið, á meðan þú ert á vefsíðu og gæti t.d. hjálpað til við að muna tungumálið sem þú ert að nota. Um leið og vafranum er lokað, eyðist textaskráin.

Á litiliupphafi.is notum við smákökur til að halda utan um það hvað þú hefur sett í vörukörfuna. Við notum líka smákökur til að halda utan um tölfræði, til þess að hjálpa við þróun síðnanna. Þeim upplýsingum er safnað í samstarfi við þriðja aðila.

Til þess að notast við vefsíður okkar þarf að samþykkja smákökur. Þú getur gert það í stillingum vafrans sem þú notar. Ef þú gerir það ekki, þá getur verið að vefsíðurnar virki ekki sem skyldi.

 

Bókhaldsgögn

Bókhaldsgögn okkar eru vistuð í samræmi við öryggiskröfur persónuverndarlaganna og laga um færslu bókhalds og varðveislu þess. Geymsla og vistun slíkra upplýsinga miðast við lög þess efnis.

 

Takmörkun ábyrgðar

Að því marki sem gildandi lög heimila, ber Lítil í upphafi (Liu verslun ehf.) enga skaðabótaábyrgð vegna atvika sem upp kunna að koma vegna þess hvernig þjónustan er notuð eða hún útveguð, nema ef hægt er að rekja slík atvik til stórfelldrar/vítaverðrar vanrækslu eða misferlis af ásetningi af hálfu Lítil í upphafi (Liu verslun ehf.).

Lítil í upphafi (Liu verslun ehf.) ber enga ábyrgð á töfum sem verða á þjónustunni eða því að þjónustan virki ekki sem skyldi vegna óviðráðanlegra atvika.

 

Lög og lögsaga

Þessi persónuverndarstefna fellur undir íslensk lög. Leysa skal úr ágreiningi sem kann að rísa eða í tengslum við persónuverndarstefnuna fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur ef ekki er hægt að leysa úr honum á annan hátt.

 

Samþykki þitt

Með því að nota síðuna okkar samþykkir þú persónuverndarstefnu okkar og breytingar sem kunna að verða á henni.

Þessari persónuverndarstefnu var síðast breytt 12. október 2018.

Hafðu samband við okkur ef einhverjar spurningar vakna varðandi þessa persónuverndarstefnu með því að nota upplýsingarnar hér að neðan.

Liu verslun ehf

Kt. 420615-0780

Drápuhlíð 37

105 Reykjavík

Lítiliupphafi@litiliupphafi.is

Sími: 5713781 6969464 8682572